|
Skrifað af Freygerður Anna
|
|
Nú fer að líða að þeim árstíma þar sem brúkaupsveislur eru hvað vinsælastar. Það er því um að gera að fara að ganga til þá skó sem ráðgert er að vera í á brúðkaupsdaginn og á það ekki síður við tilvonandi brúðguma en brúðina. Það vill enginn lenda í því að fá hælsæri í miðri veislu og minnast brúðarvalsins með sársaukafullu ívafi.
Hægt er að kaupa ýmsar gerðir af innleggjum sem mýkja botn skónna og draga þannig verulega úr hættu á þreyttum og aumum fótum. Fyrir sjálfa brúðkaupsathöfnina er síðan nauðsynlegt að fjarlægja alla miða undan skóm þar sem þeir verða mjög áberandi þegar kropið er til altaris og geta dregið athygli kirkjugesta frá hátíðleika athafnarinnar. |