Valmynd
Heim
Fréttir
Myndasafn
Spurt og svarað
Vín mánaðarins
Glersalurinn
Borðbúnaðarleiga
Veisluhald ehf.
Hafa samband
Krækjur
Valmöguleikar
Setja í uppáhalds
Gera að upphafssíðu
Prenta út
Algengar spurningar PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Stefán Ingi   

Spurðu og við svörumÁ þessari síðu munum við safna öllum algengustu spurningunum sem okkur berast og þeim svörum sem við eiga.
Ef þú hefur spurningu handa okkur þá ekki hika við að senda okkur spurningu til Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það og við munum leitast við að svara þér eins fljótt og auðið er.
Vert er að taka fram að hægt er að spyrja hvers sem er ef það á annað borð kemur veislum við.


Spurning:
Við verðum með 100 manna brúðkaupsveislu í haust, hversu marga þjóna þurfum við ?

Svar:
Gott er að hafa einn þjón fyrir hverja 20-25 gesti.


Spurning:
Við erum að fara halda upp á tvöfalt stórafmæli á laugardagskvöldi sem verður standandi veisla
á milli kl. 5 og 8 þar sem við bjóðum upp á bjór, hvítvín, rauðvín og gos.
Hversu mikið vín þarf á pr. mann ?

Svar:
Alltaf er nauðsynlegt að áætla ríflega þegar halda skal veislu, því auðveldara er að skila en
að verða sér út um veitingar eftir lokun vínbúða. Gott er að reikna með:
1- 1 1/2 líter af bjór á mann.
4 - 5 léttvínsglös á mann.
Eiga nóg af gosi.


Spurning:
Hvað eru mörg glös í einni léttvínsflösku ?

Svar:
Það eru áætluð ca. 5 glös í einni léttvínsflösku.


Spurning:
Hvað eru mörg glös í einni freyðivínsflösku ?

Svar:
Það eru áætlað ca. 6 glös í einni freyðivínsflösku.


Spurning:
Við skötuhjúin erum að fara að gifta okkur, eftir athöfn bjóðum við gestum til kvöldverðar,
þar sem boðið verður upp á freyðivín í fordrykk. Hversu mörg glös eigum við að áætla
á mann af freyðivíni ?

Svar:
Miðað við að þið farið í myndatöku eftir athöfn verður að áætla a.m.k. 2 glös á mann.


Spurning:

Ég er að fara að halda upp á afmælið mitt. Ég býð 30 gestum heim til mín í veislu frá
kl. 21.00 til kl.24.00. Ég ætla að bjóða upp á pinnamat, hversu marga bita er áætlað
að þurfi á mann ?

Svar:
Þegar boðið er í veislu eftir kvöldmat er nóg að áætla ca. 5-8 bita á mann.


Spurning:
Ég verð með standandi boð fyrir starfsfólk mitt eftir vinnu á föstudegi frá kl. 17-19.
Við erum um 30 manns. Boðið verður upp á léttvín og einnig verða snittur, hversu
margar snittur á ég að áætla á mann ?

Svar:
Gott er að miða við ca. 6 - 8 snittur á mann.

 

 


Spurning:
Hvað er venjan að bjóða upp á margar tegundir af sterku víni í afmælisveislu ?

Svar:
Yfirleitt er verið að bjóða uppá þessar fimm tegundir:
Vodka, gin, romm, campari og viskí.

Spurning:
Við erum að fara að halda upp á fermingu dóttur okkar. Við gerum ráð fyrir því að gestir í veislunni verði um 70 talsins. Hvað eigum við að gera ráð fyrir því að það fari mikið af gosi.

Svar:
Gera má ráð fyrir því að það fari um það bil 1,5 glas af gosi á mann. Í tveggja lítra gosflösku eru um 10 glös. Við ráðleggjum fólki samt alltaf að kaupa ríflega því það er betra að skila inn afgangi heldur en lenda í því að vera uppiskroppa með drykki í miðri veislu.