|
Eitt það vinsælasta síðasta sumar |
|
|
|
|
Skrifað af Stefán Ingi
|
|
Við hjá Veisluhaldi höfum nú boðið upp á súkkulaðifondupottana okkar í tæpt ár. Á þessum tíma hafa fjölmargir ánægðir viðskiptavinir tekið pottanan á leigu og komið veislugestum sínum skemmtilega á óvart með glæsilegri byrjun á góðri veislu. Oft er fólk í vandræðum með hvað bjóða eigi upp á með fordrykknum og hvernig megi gera veisluna eftirminnilega frá fyrsta andartaki. Við hjá Veisluhaldi höfum lausnina fyrir þig. Hægt er að velja milli fjögurra og þriggja hæða fondue potta þar sem gestir geta dýft meðal annars ferskum ávöxtum inn í gómsætan súkkulaði foss.
Ef þú vilt koma gestum þínum skemmtilega á óvart og bjóða þeim upp á nýja upplifun í hæsta gæðaflokki þá er þetta svarið. Hægt er velja milli tveggja staðlaðar bakka, annarsvegar jarðaber og hinsvegar Jarðaber og vínber. Ekkert mál er að verða við óskum um annað hráefni sé þess óskað. |