Valmynd
Heim
Fréttir
Myndasafn
Spurt og svarað
Vín mánaðarins
Glersalurinn
Borðbúnaðarleiga
Veisluhald ehf.
Hafa samband
Krækjur
Valmöguleikar
Setja í uppáhalds
Gera að upphafssíðu
Prenta út
Glersalurinn PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Stefán Ingi   


Veisluhald hefur tekið við rekstri á hinum geysivinsæla og fallega sal Glersalnum í kópavogi.

Staðsetning
Veislusalurinn er staðsettur á fallegum stað við Lindakirkju.  Úr veislusalnum er stórkostlegt útsýni yfir Kópavog og í átt að Garðabæ og Hafnarfirði.

Aðbúnaður
Komið er inn í andyri á jarðhæð, þar er góð lyfta og aðgengi fyrir fatlaða mjög gott.
Fatahengið er á þriðju hæð og þar eru einnig stórar og góðar snyrtingar.
Veislusalurinn er nýr og allur hinn glæsilegasti.  Salurinn rúmar vel ca. 80-160 manns í sæti en tekur allt að 250 manns í standandi veislu.
Gott svið er á staðnum ásamt dansgólfi og því öll aðstaða til dansleikjahalds hin ákjósanlegasta.
Salurinn hentar einkar vel fyrir fundi og ráðstefnur og hægt er að uppfylla allar óskir um tækjabúnað.

Veitingar
Veisluhald hefur á sér gott orðspor fyrir góðar og miklar matarveislur.  Endilega leitið tilboða hjá okkur, oft hefur verðið komið gestum okkar þægilega á óvart.
Veisluhald hefur vínveitingaleyfi og er fólki því skylt að ráðfæra sig við starfsfólk okkar um vínveitingar.
Veisluhald leggur til þjónustufólk í sal, barþjóna og dyraverði eftir þörfum hverrar veislu.

Bókaðu skoðun
Ef glæsileg umgjörð um glæsilega veislu skiptir þig máli mundu þá Glersalurinn.  Pantaðu tíma hjá
Stefán Inga í síma  659-1111  eða sendu póst á  Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það    og komdu og skoðaðu, því sjón er jú sögu ríkari.