Valmynd
Heim
Fréttir
Myndasafn
Spurt og svarađ
Vín mánađarins
Glersalurinn
Borđbúnađarleiga
Veisluhald ehf.
Hafa samband
Krćkjur
Valmöguleikar
Setja í uppáhalds
Gera ađ upphafssíđu
Prenta út
Vín mánađarins PDF Prenta Rafpóstur
Skrifađ af Stefán Ingi   

Graffigna Malbec

Framleiðandi: Pernod Argentína
Þrúgur: Malbec
Litur: Heillandi vín með fallegt yfirbragð.

Ilmur: Frekar flókið og skemmtilegur ilmur af grænum jurtum.
Bragð: Svört kirsuber og plómur einkenna vínið og tvinnast þau þægilega við
mjúkt tannin og krydd.

Vínið er frábært með grillmat af ýmsu tagi s.s.kjúkling, lambi og grís.
Krafturinn í víninu gerir það að verkum að það passar vel með bragðmiklum mat.

Annað: Bodegas y Vinedos  var stofnað árið 1870. Bodegas Graffigna er eitt af elstu
víngerðarhúsum í Argentínu og er staðsett við San Juan nálægt Andesfjöllunum.

 



Graffigna Semillon-Chardonnay

Framleiðandi: Pernod Argentína
Þrúgur: Semillon og Chardonnay
Litur: Fallega gyllt með grænum undirtón.

Ilmur: Opið vín það sem ferskleikinn er í fyrirúmi.
Bragð: Þægileg fita sem tvinnast skemmtilega við sítrus og
gerir vínið ómótstæðilegt.

Fráært vín með margskonar mat þó sérstaklega kjúklingi.
Einnig gott með fiskréttum af ýmsu tagi.

Annað: Bodegas y Vinedos var stofnað árið 1870. Bodegas Graffigna er eitt
af elstu víngerðarhúsum í Argentínu og er staðsett við San Juan nálægt Andesfjöllunum.

 

 




 

Solora Chardonnay

 

Tegund: Hvítvín
Land: Ástralía
Svæði: Vestur Ástralía
Framleiðandi: Palandri
Berjategund: Chardonnay 

 


Einstak vín með miðlungsfyllingu, þurrt með bragðeinkenni ferskra ávaxta.
Ilmurinn er einkennandi af þroskuðum perum með vott af ananas. Í munni er vínið áberandi ávaxtamikið með ferskjum og melónum ásamt kremuðum keim. Vínið er ferskt með rétt örlítin vott af eik sem kemur í ljós rétt á undan ferskri sýru.

Um 20% af víninu var gerjað á amerískri eik og undirgekk malólaktískri gerjun til að auka við mýkt vínsins og breidd.

Solora Chardonnay hentar einna best sjávarfangi, pastaréttum, kjúkling og kálfakjöti

 

 

 



Solora Shiraz

 

Tegund: Rauðvín
Land: Ástralía
Svæði: Vestur Ástralía
Framleiðandi: Palandri
Berjategund: Shiraz
Sölustaðir: Sérverslun ÁTVR Heiðrún og Kringlunni

 


Mjúkt og ríkulegt vín með léttum ávaxtakeim frá byrjun til enda. Solora Shiraz hefur áberandi ávaxtakeim frá plómum og svörtum berjum með hvítum pipar í undirtóni. Í munni er vínið einnig ávaxtaríkt, með safaríkum plómum og skógarberjum ásamt kryddtónum.

Um 20% var gerjað á amerískum eikartunnum, blanda gamalla og nýrra tunna.

Solora Shiraz er best með bragðmiklum mat eins og lambi, önd og nautakjöti.

 

 





Domaine Laroche Chablis

 

Tegund: Hvítvín
Land: Frakkland
Hérað: Bourgogne
Svæði: Chablis
Framleiðandi: Domaine Laroche
Berjategund: Chardonnay
Sölustaðir: Kringlan Heiðrún Eiðistorgi Smáralind Hafnarfirði Akureyri Dalvegi Dalvík Austurstræti Mjódd

 

Chablis svæðið er staðsett mitt á milli Parísar og Beaune. Víngarðarnir eru á Kimmeridgian leir og limestone svæðum. Svæðið nær yfir um 3000 hektara og er meðalframleiðsla svæðisins 150,000 hektarlítrar. Þessi einstaki grýtti jarðvegur sem er samsettur úr ostruskeljasandi gefur Chablis vínum ölkeldu eiginleika. Framleiðslan og geymslan er á stáltunnum við stjórnað hitastig til að viðhalda ferskleika vínsins.

Domaine Laroche Chablis er tært og hreint. Hefur líflegan ilm af ferskum ávöxtum. Gott sýrustig, með vott af ferskum sýrumiklum ávöxtum eins og eplum og perum en einnig þó nokkur jörð og örlítil ölkelda.

Hið virta víntímarit Wine Spectator fjallaði um Domaine Laroche Chablis í ágúst hefti sínu 1996: Létt, krisp og jafnvel örlítið tart. Færir manni fersk epli, perur og sítrónubragð. Fær 83 stig af 100 mögulegum.




Bolla Sangiovese Di Romagna

 

Tegund: Rauðvín
Land: Ítalía
Hérað: Emilia-Romagna
Svæði: Romagna
Framleiðandi: Fratelli Bolla
Berjategund: Sangiovese
Sölustaðir: Akureyri Hafnafjörður Seltjarnarnes Kringlan Heiðrún

 

Sterk berjalykt eins og rifsber, súr kirsuber, plómur og fjólur. Þurrt og með hreinu kryddbragði, í góðu jafnvægi með frískandi sýru sem vegur á móti hinum mikla ávexti Sangiovese. Auðdrekkanlegt vín. Sangiovese di Romagna er framleitt og geymt í stáltönkum. Er best notið innan þriggja ára frá árgangsdegi.

Hentar vel pasta með tómatssósu, rifum, kjúklingi, kálfakjöti, svíni, nauti og köldum kjötréttum sem og köldu salati.

 




B&G Chardonnay

Tegund: Hvítvín
Land: Frakkland
Hérað: Langudoc
Framleiðandi: Barton & Guestier
Berjategund: Chardonnay
Sölustaðir: Sérverslun ÁTVR Heiðrún og Kringlunni

B&G Chardonnay vann til tveggja gullverðlauna á Alþjóðlegur vínhátíðinni í San Fransisco nú nýverið. Yfir 4000 vín frá 21 landi kepptu.

B&G Chardonnay er tilvalið með hvítu kjöti eins og kjúkling og fiskréttum. Vínið ber ferskan ávöxt með vott af hesilhentum og blómum. Aðlaðandi og einstaklega vel gert vín frá Suður Frakklandi

B&G Cabernet Sauvignon

Tegund: Rauðvín
Land: Frakkland
Hérað: Langudoc
Framleiðandi: Barton & Guestier
Berjategund: Cabernet Sauvignon
Sölustaðir: Kringlan Heiðrún Eiðistorg Smáralind Hafnarfjörður Akureyri Dalvegur

Barton & Guestier Cabernet Sauvignon hefur djúprauðan lit og ríkulegan angan. Kryddaður ilmur með áberandi tóna ávaxta eins og rauðum sólberjum og bláberjum. Vínið hefur góða dýpt og jafnvægi. Það er auðvelt til drykkju og hefur góðan karakter.
Barton & Guestier Cabernet Sauvignon er tilvalið með grillmat, önd, lambi, paté, pasta og ostum.

Vínið hlaut silfurverðlaun á International Wine Challenge 2002 í Brussel.



 

Maipo Valley

Maipo svæðið er mjög auðugt svæði. Fyrr á öldum þótti það fínt hjá eigendum koparnáma að sýna auð sinn með víngörðum. Frumkvöðullinn að vínframleiðslu í Maipo Valley var Don Silvestre Ochagavia Echazarreta, hann flutti inn vínvið frá Frakklandi 1851, rétt áður en phylloxeran skall á í Evrópu. Jarðvegurinn er frekar grýttur og saltríkur í nágrenni við Maipo ánna en verður sendnari þegar fjær dregur. Cabernet Sauvignon er aðal þrúgan og er mjög mismunandi eftir því hvaðan úr dalnum hún kemur.



Vina Maipo Chardonnay

Tegund: Hvítvín
Land: Chile
Framleiðandi: Viña Maipo
Berjategund: Chardonnay
Sölustaðir: Sérverslun ÁTVR Heiðrún og Kringlunni

Epli og suðrænir ávextir. Einstaklega ferskt vín í góðu jafnvægi. Mjög gott með sjávarréttum - fiskur og skelfiskur.



Vina Maipo Cabernet Sauvignon  

Tegund: Rauðvín
Land: Chile
Framleiðandi: Viña Maipo

Berjategund: Cabernet Sauvignon
Stærð: 75 cl
Sölustaðir: Sérverslun ÁTVR Heiðrún og Kringlunni

Plómur, brómber, súkkulaði og vanilla. Vín í mjög góðu jafnvægi. Mjög gott með rauðu (grill)kjöti, pasta og ostum.





Torres Viña Sol


Tegund: Hvítvín
Land: Spánn
Hérað: Penedés
Framleiðandi: Miguel Torres
Berjategund: Parellada 
Sölustaðir: Sérverslun ÁTVR Heiðrún og Kringlunni
100% Parellada.

Klassískur fölgulur litur, ilmur af ferskum vínberjum, ásamt öðrum ávöxtum s.s. þroskuðum bönunum, blómum (t.d. rósir og rósmarín), ákaflega létt og milt vín, örlítið sætt.

Torres Vina Sol hentar vel með sjávarfangi, sérstaklega með þorsk og silungi, einnig skelfiski eða fiski með sætum sósum. Einnig tilvalið með mjúkum osti og salati. Að auki ágætis desert vín, sem og eitt og sér.

Torres Vina Sol fékk nýverið 82 stig hjá hinu virta tímariti Wine



Torres Sangre De Toro


Tegund: Rauðvín
Land: Spánn
Hérað: Penedés
Svæði: Catalonia
Framleiðandi: Miguel Torres
Berjategund: Carinena , Garnacha 
Sölustaðir: Sérverslun ÁTVR Heiðrún og Kringlunni
65% Garnacha og 35% Carinena.

Þetta vín hefur rúbínrauðan lit. Sterkur kryddilmur Miðjarðarhafsins, með votti af sólberjailmi. Ljúf áferð tanníns er það sem menn verða fyrst varir við og svo kemur berlega í ljós frábært bragð af lakkrís og dökkum berjum.

Sangre De Toro hentar vel með steikum, pottréttum og einnig með hefðbundnum spænskum réttum. 

Gold Medal International Wine & Spirit Competition ´99 (´96 Vintage




Félix Solís Fernández

Félix Solís Fernández og fjölskylda hans stofnuðu Solís víngerðina árið 1950 eftir að þau keyptu "Bataneros". vínekrurnar í Valdepenas héraðinu á Spáni. Þar framleiddu þau nokkrar víntegundir sem fluttar voru til Madrid þar sem þeim var tappað á flöskur og eingöngu seld til bestu veitingahúsa borgarinnar. Síðar stofnaði fjölskyldan eigin átöppunarverksmiðju og fór að flytja vínið til annarra héraða Spánar. Vegur fyrirtækisins óx jafnt og þétt í réttu hlutfalli við vinsældir vínanna. Árið 1960 hóf Solís fjölskyldan útflutning á vínum og áratug síðar réðst fyrirtækið í að stækka vínekrur sínar verulega til þess að anna eftirspurn. Um þessar mundir er Felix Solís S.A. einn af stærstu vínframleiðendum í Valdepenashéraðinu, auk þess sem fjölskyldan framleiðir vín í öðrum helstu vínhéruðum Spánar, svo sem Rioja og Ribera de Duero héruðunum.

Felix Solis framleiðir vín sín nánast eingöngu úr vínþrúgum héraðanna og notar til að mynda Tempranillo og Cabernet Sauvignon þrúgur í rauðvíns framleiðsluna og Viura og Airen þrúgur við hvítvínsgerð. Allt vín Felix Solis er geymt í tunnum úr amerískri eik, en hún gefur víninu sætu og vanillubragð í meira mæli en flestar aðrar eikartegundir.

Diego de Almagro Crianza Valdepenas D.O.Diego de Almagro Crianza Valdepenas D.O.

Aðal þrúgan í þesu víni er Tempranillo. Vínið er geymt í amerískum eikartunnum í 6 mánuði. Eftir það er það geymt í flöskum í 12 mánuði áður en það er sett á markað.

Þetta vín er létt og líflegt með góðu ávaxtabragði í bland við myntu- og pipar bragð. Í víninu er ágætt jafnvægi á milli sýru og ávaxta. Vínið er bragðgott og tilbúið til neyslu.

Matur: Þetta vín er gott með léttum réttum. Best er það þó með tapas- og tómatréttium. Eins er vínið gott með lambakótelettum.

 



Delicato Family

San Bernabe vínekrurnar eru stórglæsilegar.Delicato fjölskyldan er einn af elstu vínframleiðendum í Kaliforníu. Stofnandi fyrirtækisins, Sikileyingurinn Gasparé Indelicato, stofnaði fyritækið Delicato í Kaliforníu árið 1935. Undir stjórn þriggja sona hans, Tony, Frank og Vince, hefur fyrirtækið tekið stórstígum framförum og vakið verðskuldaða athygli fyrir framleiðslu sína, sértstaklega undanfarin 10 ár. Vín frá Delicato eru margverðlaunuð, þó sérstaklega Shiraz-vínin sem hafa verið kosin bestu Shiraz vín í Kaliforníu tvö ár í röð. Árið 2003 var Delicato kosin framleiðandi ársins í bandaríkjunum.

Clay Station vínekrurnar eru síðan ekkert síðriÁrið 1988 keypti Delicato fjölskyldan San Bernabe vínekrurna, sem er ein stærsta vínekran í Kaliforníu, og árið 1995 eignaðist fjölskyldan Clay Station vínekruna. Alls ræktar fjölskyldan 21 tegund vínþrúga og framleiðir vín úr þeim öllum.

Vífilfelli flytur inn níu tegundir vína frá Delicato.


Merlot frá Delicato.Delicato Merlot

Þótt Merlot vínið þoli geymslu í þrjú til fjögur ár, er best að njóta vínsins strax. Þetta er þægilegt og milt vín með djúprauðum lit. Það hefur mikið ávaxtabragð þar sem plómur og hindber eru allsráðandi. Ending bragðsins er talsverð og þá tekur súkkulaði- og kaffibragði yfirhöndina.

Matur: Vínið passar einstaklega vel með steikarréttum, sérstaklega ef tómatar, spínat og sveppir eru hluti af meðlætinu. Vínið er einnig frábært eitt og sér.







Vina Morandé:

Pablo Morandé vann hjá hinum virta vínframleiðanda Concha y Toro fram til ársins 1982. Þá stofnaði hann, sitt eigið fyrirtæki í félagi við nokkra lykilmenn Concha y Toro.

Pablo Moorandé ákvað að reyna fyrir sér á nýjum slóðum og plantaði sínum fyrsta vínviði í Casablanca valley, þar sem lítil reynsla var af vínrækt.

Vínviðurinn óx og dafnaði og þrúgurnar þóttu afburða góðar. Þegar vínin fóru á alþjóðlegan markað árið 1997 var þeim strax afar vel tekið, bæði af gagnrýnendum og vínáhugamönnum sem kunna vel að meta nýjungar. Morandé hefur frá upphafi lagt áherslu á ögrandi vín og hann hefur verið óhræddur við að gera tilraunir sem fallið hafa neytendum vel í geð. Nú framleiðir Morandé vín úr 17 tegundum vínþrúga. 

Víngerðahús Morandé, Peleguén, er staðsett í Rapel Valley rétt utan við Santiago. Húsið þykir eitt tæknilegasta víngerðarhúsið í Chile um þessar mundir.

Morandé notar bæði franska eik og ameríska eik í tunnur sínar og blandar jafnvel saman eikartegundum til að fá út skemmtileg, flókin og spennandi vín. Morandé kaupir töluvert af þrúgum af öðrum bændum til að anna eftirspurn. Hann vinnur þá með bændunum á uppskerutímanum til að gæði berjanna verði sem mest.


Hátíðarvínin okkar eru:


Vina Morandé Sauvignon Blanc frá Curicó Valley.

Sérstaða þessa nýjaheims víns, úr saugvignon þrúgum, felst í því að það er í senn ferskt og þroskað. Í fyrstu er bragð þess rísandi með áberandi ávaxtabragði. Bragðið verður síðan suðrænt og seiðandi. Í lokin læðist fram gott rjómabragð og fyrir vikið hentar vínið vel með feitum sósum.

Litur vínsins er gulgrænn með ristuðum blæ.

Matur: Vínið hentar mjög vel með öllum fiski- og sjávarréttum, auk þess að henta prýðilega með pasta. Þetta er skemmtilegt vín og kjörið eitt og sér.





 

 

 


 

Vina Morandé Cabernet Sauvignon frá Central Valley



Vín úr Cabernet Sauvignon þrúgum eiga það til að vera töluvert ákveðin Þetta vín er ánægjuleg flauelsmjúk undantekning. Vínið er með góðu sólberjabragði sem þróast yfir í bragð af dekkri berjum sem endar í súkkuðlaikeim. Vínið er fallega rautt að lit.


Matur: Þetta vín er eitt það besta sem hægt er að hugsa sér með grillmat. Vínið kallar á létta matargerð og hentar sérlega vel með lamba- og kálfakjöti. Það skemmir ekki að hafa aðeins sætu með matnum, til dæmis sultu eða sykurbrúnaðar kartöflur, til að fullkomna máltíðina.